Bloggar | 27.4.2010 | 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Arfurinn var 180 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.4.2010 | 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
En getur hann sagt vaðlaheiðavegavinnuverkfærageymsluhúslyklakippuhringurinn?
The Daily Show With Jon Stewart | Mon - Thurs 11p / 10c | |||
Volcanolypse 2010 | ||||
|
Kann að segja Eyjafjallajökull | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.4.2010 | 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er ómissandi fegurð. Þar sem ég er áhuga ljósmyndari gæti maður tekið margar landslagsmyndir. En hvað kostar svona útsýnisferð?
Annað mál. Hvað er forsetinn okkar að babbla núna! Hvernig dettur honum í hug að halda því fram að Katla muni gjósa, hræða heimsbyggðina að óþörfu.
Eins og sparkað í flugvélina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.4.2010 | 15:08 (breytt kl. 15:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eins og norski maðurinn sagði um daginn að hættan væri engin og að þetta væri bara móðursýkiskast. Betra að vera 100% öruggur þegar kemur að farþegum.
En rosalega hefur þessi aska mikil áhrif, og mun sjálfsagt dreifast um allan heiminn. Askan mun hafa verstu áhrif suður á boginn. Í Afríku, og fer bráðum til Asíu og mun hafa áhrif á mikinn gróður.
Við getum allaveganna verið viss um að flestir í heiminum vita hvar Ísland er.
Nauðlending í Norður-Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.4.2010 | 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Rosalega mikið í gangi á Íslandi þessa dagana. En man einhver erftir Icesave? Er það mál ekki bara orðið úrelt :)
Ég get endalaust hlegið að þessum fréttaflutningi frá BBC fréttastofunni þegar maðurinn reynir að segja Eyjafjallajökull.
http://news.bbc.co.uk/2/hi/europe/8620352.stm
Fólk gangi með rykgrímur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.4.2010 | 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þrír menn eru nú þegar úrskurðaðir látnir við upplesturinn á skýrslu rannsóknarnefnd Alþingis. Lögreglan hefur tilkynnt að það yrði ágætt ef þeir sem eru fengnir til að lesa skýrsluna upp fengu allaveganna eitthvað að borða og vatn að drekka þegar lesturinn er í gangi. Vigfús Hreiðarsson rannsóknarlögreglumaður var reyndar ekki við sem stendur þegar fréttamaður hjá Vikuhorni reyndi að fá skýringu á þessu. En hann komast að því að Vigfús var víst staddur á fleka í miðju Atlantshafinu. Það er hinsvegar önnur frétt, sem við nennum ekki að fjalla um.
Trúlega fimm hundruð ísraelskir skæruliðar voru handsamaðir í pylsuveislu nú á dögunum. Fylgst hafði verið með þeim. Þeir voru klæddir í smóking í einni virtustu pylsuveislu sem haldin er á 5 ára fresti og háma í sig pylsur og þamba þykkmjólk. Við hjá Vikuhorni skiljum eiginlega ekki hversvegna fréttamður okkar kom með þessa frétt. Enda var hann rekinn, já hann var rekinn út úr kaffistofunni.
5 menn í Bretlandi sem staddir voru á krá voru beðnir um að hætta þessu tali um þræla og einn var skotinn í hægra eistað með baunabyssu. En þar var misskilningur á ferð. Þeir voru að tala um Icesave en þeir voru svo fullir og mikið slím í hálsinum svo að fólkið á kránni hélt þeir væru alltaf að segja Iceslave. Út af þessum misskilning var óvart einn maður lengst inni í horni á kránni sem hafði verið í þrælabúðum í Rússlandi. Hann tók þessu ekki vel og hringdi í alla sem hann þekkti og bað fólkið um að koma á kránna og kenna þessum mönnum lexíu og vera ekki að tala svona um þræla! Þar sem þessi maður var 89 ára gamall kom ekki nema tvær aldraðar konur í göngugrind en létust samstundis þegar 10 lítrar af sjóðandi lýsi helltist yfir þær þegar þær voru að ganga yfir götuna því kráin var hinu megin við götuna. En flutningarbíll sem var með tank fullan af lýsi sá ekki konurnar fyrr en það var of seint svo hann valt bílnum og lýsið helltist yfir konurnar og þær soðnuðu. Allt þetta gerðist út af þessum 5 mönnum sem höfðu ekki hugmynd um að þetta gerðist eða að þeir ullu þessu.
Vísindahornið
Vísindamenn okkar fengu afrit af skýrslu rannsóknanefnd Alþingis á borð til sín. Þeir hafa ekki hugmynd um afhverju og hafa þeir notað skýrsluna sem efnivið í brennu sem þeir kveiktu í og dansa í kringum eldinn. Þeir halda að það sé líklegt að stjörnurnar á himnum muni koma með svar. Verst að það var hábjartur dagur og engar stjörnur.
Smáauglýsingar
Trúbador og vælukjói óskar eftir húsnæði í Asparholti. Nánari upplýsingar. sími : 118, spurðu um trúbadorinn Einar.
Hjólastóll Upphækkaður, með 20 tommu álfelgur, sígarettukveikjara, öskubakka, útvarp og 300 watta hátalara með 450 watta bassaboxi, óska eftir góðu tilboði. Ekkert ruglverð.
Davíð Oddsson, ekki þessi þekkti óskar eftir að skipta á nafni við einhvern. Er helst að leita eftir Erlingur, Tinni eitthvað þessháttar. Upplýsingar : sími, á ekki síma. netfang, á ekki tölvu, ég verð á vappinu um Skúlagötu í mánuðinum, reyndu að hitta á mig. Verð með bláa derhúfu.
ps. Þið sem lesið þetta hjá Vikuhorni, eru þið....uhhh ég veit ekki hvort ég á að nota fleirtölu, jahh ókei ef þið lesið þetta og rekist á okkur eða sjáið okkur ganga einhversstaðar viljið þið henda í okkur tómötum. Því við erum svo fátækir og frábært ef það gerðist um hádegisbilið svo við fengjum kannski einhvern hádegismat.
Bloggar | 13.4.2010 | 04:52 (breytt kl. 05:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar